Weight | 1 kg |
---|
Pearl Nitrum ilmolíulampi
15.900 kr.
Nitrum settið af gler-ilmúðum frá Madebyzen fangar kjarna glerlistarinnar. Hönnuðir okkar hafa sameinað forna tækni og fremstu nútímatækni til að búa til sjónræna töfrandi og nútímalega línu í ilmolíulömpum.
PEARL ilmúðinn skapar ljúft andrúmsloft með ljósi af LED perum sem eyða litlu og hjálpa þér að slaka á. Þessir glæsilegu ilmolíulampar munu gera umhverfið líkast dýru SPA með ljúfum ilmi að eigin vali og fallegu ljósi.
PEARL er úr gleri og Mósaík og gerir hvaða umhverfi sem er einstaklega elegant!
Með því að bæta við kranavatni og nokkrum dropum af uppáhalds ilmolíunni þinni í úðann, mun hann með því að ýta á einn takka, um leið veita hitalausu og algjörlega öruggu fínu misti af ilmandi gufu í andrúmsloftið til að örva skilningarvitin og leyfa þér að sökkva ofan í afslappandi heim heilunar og jafnvægis. Talið er að þetta sé besta leiðin til að úða ilmi í andrúmsloftið, þar sem enginn hiti er notaður og olíurnar brotna ekki niður.
PEARL ilmolíulamparnir hafa einnig úðastjórnun sem skiptir sjálfkrafa um úðun og gufu með sekúndna millibili, sem er tilvalið þegar nota skal sterkari ilm.
Ef þú notar úðann án olíu og ilms, geturðu samt sem áður notið rakans af úðanum en hann er tilvalinn til að vinna mót þurrki sem skapast af nútíma upphitun og loftkælingu.
PEARL slekkur á sér sjálfur þegar vatnið fer niður fyrir ákveðin mörk, sem þýðir að hann er fullkomlega öruggur og tilvalinn til notkunar innan um börn og húsdýr.
PEARL er rakatæki – jónatæki – hreinsun á lofti – ilmgjafi ef vill og lítið fallegt ljós.
Stærð: 12,6 cm x 13,4 cm
Kraftur: 12w
DC 24V
Vatnsmagn: 100 ml ATHUGIÐ, Pearl er í Nitrum lampa-línnunni og þeir lampar virka þannig að þegar vatnsmagnið er um það bil hálfnað í tankinum þá slekkur lampinn á sér, en þá þarf að kveikja aftur á gufunni með gufu-takkanum og þá klárar hann vatnið alveg og slekkur svo á sér.
In stock